Samstarf

Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is

Já.is
„Veðrið er óneitanlega umræðuefni sem sameinar þjóðina. Allir geta rætt það óháð aldri,” segir Dagný Laxdal forstöðumaður vefmiðla hjá Sýn um nýja veðurkort Já.is
„Veðrið er óneitanlega umræðuefni sem sameinar þjóðina. Allir geta rætt það óháð aldri,” segir Dagný Laxdal forstöðumaður vefmiðla hjá Sýn um nýja veðurkort Já.is Vilhelm

Veðurupplýsingar frá Veðurstofu Íslands eru orðnar aðgengilegar á kortavef Já.is.

Þessi nýjung gerir notendum kleift að velja nákvæma staðsetningu á korti og sjá veðurspá næstu daga í rauntíma.  Í fyrstu verða veðurupplýsingar í boði á Já.is vefnum, en verður bætt við appið síðar.

Íslendingar áhugasamir um veður

Fáar þjóðir í heiminum eru jafn áhugasamar um veðrið og Íslendingar enda erum við talsvert háð  náttúruöflunum. Mörg skipuleggjum við sumarfríið eingöngu eftir því hvar spáð er að sjáist til sólar og  frasinn að „elta góða veðrið" er rótgróinn í málinu. 

Nýja veðurkortið á Já.is er einfalt í notkun. Valin er staðsetning á kortinu og þá birtist gluggi neðst á skjánum með upplýsingum um veðrið í rauntíma. Þegar smellt er á gluggann opnast spá næstu daga.

„Íslendingar eru upp til hópa mikið veðuráhugafólk og við erum ákaflega spennt fyrir að geta nú boðið þeim upp á betri leið til að sjá staðarspá t.d. fyrir sumarbústaðinn. Veðrið er óneitanlega umræðuefni sem sameinar þjóðina. Allir geta rætt það óháð aldri. 

Þetta er einnig mjög góð viðbót fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur í leit að besta veðrinu," segir Dagný Laxdal forstöðumaður vefmiðla.

Vefur í stöðugri þróun

Kortavefur Já.is fór í loftið árið 2013 og hefur síðan þá verið þróaður með hjálp notenda og viðskiptavina. Mánaðarlegir notendur kortavefsins eru í kringum 130.000 og inniheldur vefurinn einnig vegvísun fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur ásamt 360°götumyndum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×